Helvíti er félagi okkar frá Sauðárkróki með svipinn á hreinu. Ég sé líka að hann er með Selfoss greiðslu svona í tilefni þess að hann var nú að djamma á Selfossi
Fyrst við erum að benda mönnum á linka hér er þá ekki rétt að rifja aðeins upp grunninn að Hamri.
Umjöllun um Bjórvömb á heimasíðu sunnlensku deildarinnar hér
Ég man þó ekki eftir því að það hafi nokkurntíman verið drukkin bjór í hálfleik né á hliðarlínunni en við vorum vissulega með vel spilandi lið sem hefði átt að vinna þessa deild öll árin.
Minn ferill með FC Bjórvömb telur einungis eitt tímabil, sumarið 2001, en mig minnir að peppöskrið okkar hafi verið ,,Thule, Tuborg, Carlsberg" og oft hafi eitt og jafnvel tvö stykki af slíkum veigum flotið með í keppnisferðir liðsins heima og að heiman.
Svo fengu líka dómararnir okkar greitt með hálfri tylft af slíku fyrir hvern leik.