Ég myndi þó segja að ég hafi bara einu sinni, mestalagi tvisvar, skorað ljótt mark og það vildi til að það var með typpinu. Það var bara vegna þess að boltinn lenti illa í ónýtum markteignum og ég, sem ætlaði að skalla boltan, fékkan í lillan. En... þrátt fyrir það kom ég honum inn, eins og svo oft áður þegar lillinn á við sögu.
Hver man ekki eftir þrumufleignum mínum á móti Ægi??? Ég var kannski ekki langt frá markinu en ég settan vel.
Rabbi getur líka örugglega sagt ykkur frá minnistæðasta leik Hamars, þegar ég skoraði níu mörk af tíu.... ha, Rabbi mannstu???
Svo myndi ég ekkert vera að rífa mig Bjössi búálfur. Eins og ég hef sagt við aðra sóknarmenn sem setja út á sóknarhæfileika mína, eins og t.d. Gumma jóns sem hefur skorað eitt mark fyrir Hamar, þá spila ég yfir 90% míns tíma inn á vellinum á okkar vallarhelmingi en samt hef ég skorað 3 mörk. Fleiri mörk en flestir þeirra sem spila hinummegin á vellinum. Sóknarmaður með 5 í 27... pufhh
Jú þetta var alveg svakalegur leikur þegar Ásgeir setti 9 mörk. Ítalinn í gönguskónum, Frank og maðurinn sem skaffaði okkur Frank voru allir saman í hinu liðinu en þarna var spilað 3 á 3 innanhúss í föstudagsbolta hjá Bjórvömb. Ég var þess heiðurs aðnjótandi að fá að spila með Geira á þessari æfingu og það var svakalegt að sjá manninn fara á svona hrikalegum hamförum inn á vellinum. Spilað var upp í tíu og ég held að okkar lið hafi unnið 10-6...mestmegnis honum Birni að þakka. Mörkin komu í öllum regnfinnbogans litum: skot í sammann inn, skallar, hjólhestur, klippur, langskot, þrumur ala Gerrard og fleira. Björn Ásgeir á svo sannarlega hrós skilið í hnappagatið og vonandi að hann komi sterkur til leiks á föstudag og bæti um betur og skori í það minnsta 10-11 mörk....er það ekki þannig að ef þú bætir ekki um betur þá kallast það stöðnun eða afturför.
Þetta er leikur sem ég mun aldrei gleyma. Án djóks..Hversu oft gerist það að komi gamall sköllóttur hálfþroskaheftur Ítali í gönguskóm á æfingu OG að Ásgeir skori 9 mörk sama kvöldið?
Einu sinni var maður sem hét Rabbi og var búinn að gera mesta knattspyrnu sigri Björns Ásgeirs mjög hátt undir höfði... þá kom Hannes og eyðilagði allt...
Og miðað við þetta og frásagnir á spjallinu þá hlakkar í manni að sjá þennann mikla markaskorara. Enda höfum við ekki verið að nýta færin 100% í síðustu leikjum - væri gott að vera með 9marka slúttara...