Members Login
Username 
 
Password 
    Remember Me  
Post Info TOPIC: Búningahórur!


Veterian

Status: Offline
Posts: 379
Date:
Búningahórur!
Permalink   


Jæja, ég er búinn að vera að vinna í tölfræði Hamars í frítímanum og þá kom mér skemmtilega á óvart að það eru einstaklingar sem eru komnir vel á veg að hafa spilað í öllum búningum liðsins. Knattspyrnumenn eru yfirleitt taldir hjátrúafullir en þessi þrír sem standa uppúr hvað þetta varðar eru það varla, nema hjátrúin sé að spila sem sjaldnast í sama búning.

Allavega það er komin keppni. Hver getur giskað á þessa þrjá einstaklinga, ÁN ÞESS að fara á Ksí enda nennir því örugglega engin. Verðlaunin fyrir alla þrjá rétta er kippa frá mér. Einstaklingarnir hafa spila í eftirfarandi treyjum:

Leikmaður 1: Ultimate búningahóra Hamars
Hefur spilað í: 3-4-5-6-7-8-10-11-12-14-15-16
Alls: 12 af 16
Eftir: 1-2-9-13

Leikmaður 2: Runner up búningahóra Hamars
Hefur spilað í: 6-8-9-10-11-12-13-14-15-16
Alls: 10 af 16
Eftir: 1-2-3-4-5-7

Leikmaður 3: Einnig Runner up búningahóra Hamars
Hefur spilað í: 2-3-4-6-7-8-12-13-14-15
Alls: 10 af 16
Eftir: 1-5-9-10-11-16

Ég mun dæma sigurvegarann eftir eigin dómgreind á heiðarleika þess manns. Hvort ég met það að hann hafi farið á Ksí eða ekki kemur í ljós

Skjótið

__________________
Krullur rokka!


Gildur Limur

Status: Offline
Posts: 33
Date:
Permalink   

Ég hugsa að ég hljóti að vera sekur um að vera ultimate hóran!

Leikmaður nr. 2 hlýtur að vera sóknarmaður, svo ég giska á Sigga Gísla og leikmaður nr. 3 varnarmaður, og þá giska ég á Haffa Björns.

Fæ ég bjór?

__________________
Hálofta-Hannes


Riddari

Status: Offline
Posts: 89
Date:
Permalink   

Sko ég held að Gummi Jóns sé einn af þessum


Hinir gætu verið Kalli og Heimir, Stebbi Orlandi, Einsi eða jafnvel Siggi Gísli


 


Ég hallast að Gumma, Heimi og Kalla



__________________
Rafn


Veterian

Status: Offline
Posts: 379
Date:
Permalink   

Rabbi, þú verður að koma með endanlegt ef þú ætlar að eiga möguleika á kippu þó að það sé að sjálsögðu í lagi að vera með vangaveltur. Það verður samt að vera endanlegur listi í lokin. Mæli með að allir skjóti, það eru engu að tapa og kippu af eigin vali að vinna


1. Ultimate


2. Runner up


3. Einnig Runner up



__________________
Krullur rokka!


Riddari

Status: Offline
Posts: 89
Date:
Permalink   

NR 1 Hannes


NR 2 Gummi Jóns


NR 3 Kalli


Já þetta er mitt lokasvar



__________________
Rafn


Prins Póló

Status: Offline
Posts: 131
Date:
Permalink   

Engin er numer 1 tannig ad....... eg er ad lata fra mer upplysingar.....heimski jonas


1. Hannes


2. haffi bjørns


3. Sigurjon



__________________
Wonderboy


Gildur Limur

Status: Offline
Posts: 33
Date:
Permalink   

Bannað að breyta Rabbi!

__________________
Hálofta-Hannes


Riddari

Status: Offline
Posts: 89
Date:
Permalink   

Ég er bara að gera Ásgeir-mundi Valtýssyni til geðs, hann bað um þetta



__________________
Rafn


Veterian

Status: Offline
Posts: 379
Date:
Permalink   

Ætla ekki fleiri að skjóta... það er engu að tapa og til mikils að vinna. Úrslitin verða gerð kunn á föstudaginn. Skjóta

__________________
Krullur rokka!


Veterian

Status: Offline
Posts: 241
Date:
Permalink   

Þetta eru


1. Hannes


2. Helgi


3. Haffi Björns


eða með öðrum H-in 3



__________________
Bjöss-man


Riddari

Status: Offline
Posts: 89
Date:
Permalink   

Æ Ásgeir nenniru ekki bara að gera úrslitin kunngjör núna...ég veit alveg að þetta er rétt hjá mér

__________________
Rafn


Veterian

Status: Offline
Posts: 379
Date:
Permalink   

Þessi orð yrðu/verða þér sennilega að falli ef þú værir/er sigurvegarinn því að með þeim væriru/ertu að viðurkenna að þú hafir vitneskju um úrslitin fyrirfram. Úrslitin verða tilkynnt strax eftir æfingu á fimmtudaginn.. eða öllu heldur á meðan á æfingu stendur á fimmtudaginn þannig að Rabbi verður vælandi í Marra alla æfinguna, Æji Marri er þetta ekki að verða búið mar!!!!

__________________
Krullur rokka!


Gildur Limur

Status: Offline
Posts: 33
Date:
Permalink   

Ásgeir, varstu að meina fimmtudaginn í næstu viku?

__________________
Hálofta-Hannes


Veterian

Status: Offline
Posts: 379
Date:
Permalink   

Nei, biðst forláts ég var fastur í umferðarteppu.


Leikmaður 1: Ultimate búningahóra Hamars = Hálofta-Hannes Bjartmar Jónsson
Hefur spilað í: 3-4-5-6-7-8-10-11-12-14-15-16
Alls: 12 af 16
Eftir: 1-2-9-13

Leikmaður 2: Runner up búningahóra Hamars = Guðmundur "Hókí Pókí" Jónsson
Hefur spilað í: 6-8-9-10-11-12-13-14-15-16
Alls: 10 af 16
Eftir: 1-2-3-4-5-7

Leikmaður 3: Einnig Runner up búningahóra Hamars = Karl Valur "Mr glass" Guðmundsson
Hefur spilað í: 2-3-4-6-7-8-12-13-14-15
Alls: 10 af 16
Eftir: 1-5-9-10-11-16 


Svika-Rafn 


Rafn hefur hér með hlotið viðurnefnið Svika-Rafn af því að það er svo augljóst að hann fór inn á Ksí og hann því útilokaður úr keppninni og verður rukkaður um eina kippu. Vonandi telur hann, þessi óheiðarlegi d***ull, að ein kippa sé þess virði að fórna mannorði sínu fyrir.


Ásæðan fyrir þessum dómi er augljós: Fyrsti póstur Svikarafns fyrir Ksí-för:


"Ég hallast að Gumma, Heimi og Kalla".


Í pósti tvö kemur svo allt í einu hárrétt röð og það sem meira er er að Hannes allt í einu kominn inn í myndina hjá honum og fer beint í Ultamate hóruna! En í pósti eitt hafði hann ekki einu sinni minnst á hann í vangaveltum sínum:


"Sko ég held að Gummi Jóns sé einn af þessum. Hinir gætu verið Kalli og Heimir, Stebbi Orlandi, Einsi eða jafnvel Siggi Gísli. Ég hallast að Gumma, Heimi og Kalla".


Þetta er alveg borðliggjandi og það má bæta við þriðja pósti svikarafns:


"Æ Ásgeir nenniru ekki bara að gera úrslitin kunngjör núna...ég veit alveg að þetta er rétt hjá mér"


Þennan póst hefði þó hæglega mátt túlka sem grín og hefði ekki verið notaður gegn mönnum undir venjulegum kringumstæðum. En í ljósi þess að maðurinn er augljóslega sekur telst þetta gríðaleg bíræfni að segjast vita úrslitin, vitandi þau, og hæðast þannig af öðrum þátttakendum og stjórnendum keppninnar! Það varð til þess að dómurinn var þyngdur úr einum bjór á mann í tvo, eða alls sex.  


Ég vill þakka öllum öðrum þátttakendum fyrir þátttökuna og heiðarlega framkomu. Þeir fá fyrir vikið allir tvo bjóra hver frá SvikaRa-fni, sem hann mun borga í sekt fyrir svikin, og tvo bjóra frá mér, þannig að allir heiðarlegir þátttakendur fá fjóra bjóra á mann.



-- Edited by Björn Ásgeir at 09:55, 2006-05-21

__________________
Krullur rokka!


Veterian

Status: Offline
Posts: 300
Date:
Permalink   

Usssss, sjálfur fyrirliðinn.......

__________________
...skjótari en skugginn


Riddari

Status: Offline
Posts: 89
Date:
Permalink   

Uss...það er nú meira hvað hann Ásgeir leggur á sig til að halda í þennan bjór sinn. En það er allt í lagi maður á hvort eð er ekki að drekka bjór þegar maður er að æfa fótbolta.


Í fyrsta póstinum mínum var ég með vangaveltur um ýmsa leikmenn sem gætu coverað sæti 2 og 3. Að minnast á Hannes í vangnaveltnapósti væri bara eyðsla á orðum því að það er svo augljóst að hann er ultimate hóran. En svo baðstu mig um að koma með endanlegan lista og þá kom ég með þá þrjá sem mér datt fyrst í hug.


Ég hugsaði bara rökrétt


Nr 1. Hannes hefur spilað í nánast öllum búningum Hamars, Árborgar, Selfoss og fleiri liða landsins þannig að hann hlaut að vera númer 1...og ég held að allir hafi vitað það...enda viðurkenndi hann það sjáfur í einum póstinum hér.


Nr 2. Sú búningahóra var sú eina sem hafði leikið í búningi númer 9. Ég hef spilað alla leiki Hamars númer níu frá því að Hamar var stofnað, nema einn. Það var Reynir S á útivelli árið 2004. Þar sem hálft Hamarsliðið var statt úti á Spáni í knattspyrnuæfingabúðum með mér á sama tíma, þ.m.t. búningahóra númer 1 og 3, þá fór ég að spá í hvaða drulludeli gæti hafað óhreinkað treyjuna mína í þeim leik. Niðurstaðan var augljós: Guðmundur. Þetta er sá maður sem ég hef hvað mest barist við um treyju númer 9 hjá Bjórvömb og hann var meira að segja nían hjá okkur Bjórvemblum á sínum tíma. Ég þurfti að láta mér tvistinn að góðu, enda það allt í lagi því að í honum spila margir góðir eins og t.d. Jan Kromkamp.


Nr 3. Þetta bara segir sig sjálft. Ef maður rennir yfir hópana sem hafa verið hér síðustu ár þá eru litlar líkur á að Króksararnir hafi spilað í 10 búningum af 16 þar sem aðeins eru búnir örfáir skýrsluleikir. Ekki er það neinn af ungu strákunum því að ekki eru þeir margir sem eiga yfir 10 skýrlsuleiki að baki, nema kannski helgi en hann hefur verið duglegur við að ræna búning eldri bróðurs síns og sína gamalkunna og góða fjölskyldutakta í honum. Kiddi og hans menn koma ekki til greina þar sem þeir spiluðu allir 0-1 leik fyrir okkur og gott ef Angantýr fær ekki bara 0 fyrir æfingasókn í kladdann hjá mér. Ef að þetta er enginn af þeim mönnum sem hafa komið til okkar síðastliðin tvö tímabil verður að leita lengra aftur, sem ég og gerði. Ég fór að hugsa um það hverjir höfðu farið beint úr Bjórvömb yfir í Hamar.


Ásgeir: Var alltaf númer 3 eða eitthvað svoleiðis, ef hann var ekki á bekknum


Gummi: Búinn


Guðni: Hætti snemma


Þráinn: Alltaf númer 6 eða 4(man ekki hvort) eins og Franco Baresi


Hannes: Búinn


Jónas: Alltaf 11


Finnbogi: Ekki búinn með nógu mikið af leikjum


Gaui: Alltaf 5


Hlynur: nei


Óli Gísla: Á ekki nógu mikið af leikjum


Davíð Heimis: Alltaf nr 10


Allan: ha?


Kalli: Ha...hmmm..já hu?...þetta gæti nú hugsast


Ég hélt áfram að beita útilokunaraðferð


Einsi spilaði of mikið í marki, Siggi Gísli var yfirleitt númer 8 og Heimir númer 5. Frank á ekki nógu marga leiki að baki og ekki Yngvi Carlos heldur. Stebbi og Bjössi voru/eru alltaf með sömu tölurnar á bakinu.


Þá hugsaði ég...er ekki bara Kalli aka Carlos bara sá eini sem kemur til greina, eða er líklegur að minnsta kosti?...jæja ég skýt á hann.


Þannig rökhugsaði ég þetta bara fram í fingurgóma


og varðandi það að ég skyldi segja(eða skrifa): "Æ Ásgeir nenniru ekki bara að gera úrslitin kunngjör núna...ég veit alveg að þetta er rétt hjá mér" er bara einfaldlega vegna þess að ég veit að ég hef rétt fyrir mér og hef vanið mig á að hafa það alltaf.


En örvæntu eigi Ásgeir því að ég skal ekki rukka þig um bjórinn. Sannir íþróttamenn sem vilja jafnt ná árangri í knattspyrnu sem spurningakeppni þeir drekka ekki áfengi. Þannig að ef þú ætlar að svolgra þessari kippu sjálfur þá skaltu hugsa þig tvisvar um áður en þú lætur hana renna ljúflega niður. Er ekki annars að fara að styttast í heimför hjá kjellinum? Þú veist að það er bjórbann á liðið.


Jæja þetta er lengsti póstur sem ég hef skrifað og líklega einn sá lengsti í sögu Hamars, eða mér finnst það allavega eftir að hafa skrifað svona lengi. Kannski að trommarapósturinn hans Grjóna sé lengri.


En strákar, takk fyrir leikinn



__________________
Rafn


Gildur Limur

Status: Offline
Posts: 33
Date:
Permalink   

Er ekki einkenni sekra mann að koma með langar afsakanir?

Allavega get ég gert út um þetta mál í eitt skipti fyrir öll. Það eina sem Rafn kíkti á KSÍ var til að sjá hver hefði verið í treyju nr. 9 í umræddum leik gegn Reyni.

Hinsvegar má segja að Ásgeir hafi klúðrað leiknum soldið með því að segja Rafni að koma með endanlegt svar. Fyrir mér var hann nefnilega búinn að koma með endanlegt svar ("Ég hallast að Gumma, Heimi og Kalla"). Þar sem hann var búinn að svara fór ég að ræða við hann um kvöldið og sagði honum að það gæti ekki annað verið en að ég væri hóran. Svo datt Rafn í lukkupottinn þegar hann fékk annan séns á lokasvari og gat bætt mér inní!

Kveðja, Ultimate-hóran!

__________________
Hálofta-Hannes


Veterian

Status: Offline
Posts: 241
Date:
Permalink   

Bara svo ég sé með þetta á hreinu þá fæ ég 4 bjóra??


það er það eina sem skiptir máli



__________________
Bjöss-man


Veterian

Status: Offline
Posts: 379
Date:
Permalink   

Rafn: Ekki reyna þetta. Þú ert svikarafn og ekkert annað. Þú ert kominn á svarta listan, fyrirliðinn sjálfur!

Hannes: Mig grunaði að Rafn væri með brögð í tafli og þess vegna bað ég um endanlegt svar hjá honum, sem sagt skilgreiningur á svarinu hans. Ég bjóst við heiðarlegri framkomu og að hann myndi setja þá þrjá sem hann taldi líklega í pósti tvö í ákveðin sæti. En hann kaus að fara "svikarafns" leiðina.

Hjörtur: Sammála, fyrirliðinn sjálfur.

Bjössi: Já, þú átt fjóra bjóra en eftir því sem mér skilst er bjórbann á liðið þannig að ef þú færð þá máttu ekki drekka þá. Þar að auki verður hver og einn að rukka sjálfur, gangi ykkur vel.



__________________
Krullur rokka!
Page 1 of 1  sorted by
 
Quick Reply

Please log in to post quick replies.

Tweet this page Post to Digg Post to Del.icio.us


Create your own FREE Forum
Report Abuse
Powered by ActiveBoard