Þar sem mæting í þjöppuna var 4föld á við meðal æfingu, langar mig til þess að minna Björn Rush á að innleiða sektarkerfið sem var samþykkt einróma á leikmannafundinum. Í grunninn er þetta mjög einfalt concept þar sem leikmaður sem ætlar að æfa með Hamri skuldbindur sig til að mæta á æfingar hafi hann tíma. Sé hann upptekinn þá skal hann láta Kristmar eða Hjört vita - ella borgi hann í pott sem nýttur verður í þágu leikmanna.
Mér skildist að Bjössi rauði hefði ætlað að taka þetta að sér..
En það gæti orðið erfitt ef hann drullast ekki uppúr þessum meiðslum sínum (annars sá ég hann dansandi eins og álfur á Jónsmessunótt, þannig kannski er hann að braggast?)
já ég "bauðst" víst til þess að taka þetta að mér. Nú vantar mig bara tæmandi lista yfir alla þá sem ætla að vera með í sumar. einnig held ég að við þurfum að láta menn skrifa undir að þeir vilji taka þátt í þessu.
Einnig hvað finnst mönnum vera hæfileg sekt við því að mæta ekki á æfingar?? kannski 250 kall??
og 1000 kall fyrir að fá rautt spjald???
Annars ætla ég að mæta á æfingu í kvöld. Ekki vegna þess að ég er orðinn svo góður í löppinni heldur vegna þess að það trúir mér enginn.
Ok ég get látið þig fá lista yfir þá sem hafa verið að æfa og þá sem eru væntanlegir. En ég er með tillögu að útfærslu.
Sektarkerfanefnd: Það verða að minnsta kosti þrír menn að vera í sektarkerfanefninni. Bjössi verður að sjáfsögðu í forsvari, ég er til í að vera nr.2 (frá og með 26. maí) og svo vantar þriðja, t.a.m. Árni Geir. Með því erum við komnir með net sem að nánast gulltryggir að einhver okkar sé alltaf á æfingu og ef leikmaður nr.1, sem verður héðan í frá talað um sem þann rauða, mætir ekki fer það á nr 2. og svo framvegis.
Útfærsla: Nú, sá rauði mun halda utan um listan en ef hann getur af einhverju ástæðum ekki mætt á æfingu væri það í mínum höndum eða Árna að rita hjá sér þá sem mættir eru og afhenda svo þeim rauða sem heldur utan um heildardæmið. Allir þrír munu svo vinna saman að því að handrukka í lok tímabils. Öll gjöld skulu rukkuð. Öll gjöld skulu vera greidd allavega viku fyrir árshátíð.
Gild afsökun: Það verður þjálfarinn að meta hverju sinni. Það verður því náið samband milli þess rauða og Þjálfarans því sá rauði verður alltaf að tjékka á listan sinn og yfirheyra svo þjálfarann um afdrif manna.
Gjöld: 250 kall fyrir að skrópa, þ.e. hafa ekki gilda ástæðu að mati þjálfara og þess rauða, er sanngjarnt að mínu mati og 1000 kall fyrir skandala rautt spjald, já. En ef um er að ræða kannski seinna gula á 90. mín er það varla sanngjarnt auk þess ef að dómarinn er ástæða spjaldsins. Ég segi: rautt spjald skal lagt fyrir sektarkerfanefndina sem úrskurða mun hvort um sektarbrot sé að ræða. Til dæmis ef að spjaldið hefur vafalaust kostað liðið sigur er það að sjálfsögðu sekt.
Þetta er mín hugmynd, breytingartillögur verða allar teknar inn í myndina áður en þetta verður gert af lögum.
Ég undirritaður heiti því að greiða sektir þær sem ég hef unnið mér inn með því að skrópa á æfingum. Við hvert skróp sem ég frem skal ég greiða 250 kr í sekt.
Vinni ég mér inn rautt spjald og bregst þar með öllum í Hveragerði skal ég greiða 1.000 krónur.
Sektir þessar mun ég greiða í 2 hlutum. Fyrst 5. júlí og svo að loknum síðasta leik.
Einnig mun ég heita því að koma alltaf sem best útlítandi á æfingar, í það minnsta vel greiddur
Leikmaður
15.maí.2006
p.s. Þjálfari hefur rétt til þess að sekta leikmann um fjárhæð að eigin vali finnist honum leikmaðurinn hafa staðið sig afspyrnu illa.
Hehe, þú verður að hafa p.s. dæmið pínulítið þannig að það sjáist varla Já mér líst vel á það að fá undirskriftir hjá þeim sem ætla að vera með í þessu þá lendum við ekki í því sama og sá sem var með síðasta sektarkerfi Mönnum ætti þá að vera frjálst á að vera ekki með í þessu en ef þeir eru það gilda reglurnar um þá...
Engin spurning um að sekta báða eftirfarandi aðila um að kosta okkur sigur á móti sama liðinu!
Guld spjald = 500kr. Rautt spjald = 1000kr. ... ath. sektir eru aðeins gefnar fyrir 'tæknivillur' (óíþrótta) og kjaft (annað truflar bara) ... tvö gul og eitt rautt gefa aðeins 1000kr. í kladdann.
skróp í leik 1000kr seint í leik 750kr skróp á æfingu 500kr. seint á æfingu 250kr. (eftir reit eða upphitun)
Gleyma dóti fyrir leik, s.s. takkaskóm, legghlífum o.s.frv. 500kr.
Sími hringir í búningsklefa yfir ræðu þjálfara 500kr.
Mér finnst fyrrnefnt sjálfsögð skuldbinding fyrir þá sem ætla vera með í sumar...
Ég skal taka þessar tillögur til greina og breyta samningnum. Samningurinn verður svo afhentur á æfingunni á kvöld.
Hins vegar þá verður að passa að þetta fari ekki út í öfgar og er því best að hafa þetta sem einfaldast. Enda eru margir hverjir leikmennirnir búnir að skalla boltann aðeins of oft