Nú er sumarið komið og því er við hæfi að skella sér á æfingar við"eðlilegar"aðstæður, þ.e.a.s. á grasi. Völlurinn okkar er ekki klár til æfinga og hefur stjórnin því brugðið á það ráð að leigja völlinn á Stokkseyri þar til Grýlu stadium er tilbúinn. Prógrammið í maí er þetta:
1. maí kl:12:00 Ásvellir Hafnarfirði, DB. Snörtur-Hamar
2. maí kl:20:00 Stokkseyri
4. maí kl:19:00 Sparkvöllurinn í Hveragerði
5. maí kl:20:00 Stokkseyri
8. maí kl:20:00 Stokkseyri
10. maí kl:19:00 Íþr.Hús Hveragerði-Skokk
11. maí kl:20:00 Stokkseyri
12. maí kl:20:00 Stokkseyri
13. maí kl:17:00 Stokkseyri, Visa bikar. Drangur-Hamar
15. maí kl:19:00 Grýluvöllur
16. maí kl:19:00 Grýluvöllur
18. maí kl:19:00 Grýluvöllur
19. maí kl:19:00 Grýluvöllur
22. maí kl:19:00 Grýluvöllur
23. maí kl:20:00 Gervigrasið Laugardal, Ísl.mótið. Afríka-Hamar
25. maí kl:19:00 Grýluvöllur
26. maí kl:19:00 Grýluvöllur
28. maí kl:16:00 Grýluvöllur
29. maí kl:20:00 Grýluvöllur, Ísl.mótið. Hamar-KFS
30. maí kl:19:00 Grýluvöllur
Birt með fyrirvara um breytingar, þær verða þá settar hér inn strax.
Össs, Hannes þú ættir ekki að kvarta, ég missi af fyrsta heimaleiknum! Ég hefði nú allavega vilja horfa á hann, er ekki hægt að fresta honum um fjóra daga?
Helst í fréttum... ...leikurinn við Drangur hefur verið færður á Stokkseyrarvöll ...Einherji hefur dregið sig úr keppni í þriðju deildinni ...stefnir allt í svaka þjöppu eftir leikinn á laugardaginn, en það er bannað að hugsa um hana fyrr en eftir hann ...Bí/Bolungarvík hafa sameinast og munu tefla fram sameiginlegu liði í sumar ...grasvellirnir fyrir austan eru óvenju seinir til í ár því að Árborgarleikur gegn Hrunamönnum hefur líka verið færður vestar ...og síðast en ekki síst þá er mynd af Rabba í action á hér á fotbolti.net
Sælir pungar, þetta er alveg óskylt þessu efni, ég nenti ekki bara ekki að stofna nýjan þráð.
Ég ætla ekki að vera með nein leiðindi en vissuð þið að við erum líklega að fara að spila 3 leiki á gervigrasi í sumar? Afríka niðrí Laugardal, KV á KR gerviteppinu og svo er Grótta víst að fara að teppaleggja malarvöllinn sinn og hyggst spila leikina þar, eftir því sem ég hef heyrt.
Er pott þétt að leikurinn á laugardaginn sé spilaður á stokkseyri? það væri nú strax skárra að spila hann á Eyrabakka. Ég held að völlurinn sé aðeins skárri þar
Trúi ekki þessari gervigrasþróun hjá þessum liðum þarna á stórhöfuðborgarsvæðinu. Það ætti að banna að spila á þessu frá fyrsta júní til lok ágúst/sept. Það endar með að einu leikirnir sem spilaðir verða á grasi á sumrin verði hjá liðunum út á landi. Eins góðir og gervigrasvellir eru fyrir fótboltan á veturna þá eru þeir jafn slæmir fyrir hann á sumrin ef þetta er þróunin. Ég er hundfúll með þetta.
Er ekki ráð að spjalla við Hermann formann á Selfossi um að halda Simma yfir Drangsleikinn. Hann á leik með Selfossi á sunnudaginn þannig að það er hægt að skipta á laugardaginn og þá nær hann báðum leikjunum.