Members Login
Username 
 
Password 
    Remember Me  
Post Info TOPIC: Með skottið milli lappanna


Veterian

Status: Offline
Posts: 241
Date:
Með skottið milli lappanna
Permalink   


Nú hef ég mikið verið að velta því fyrir mér hvenær ákveðnir aðilar sem að spiluðu með Hamri síðastliðið sumar en fóru svo yfir bæði lækinn og þjóðveginn í leit að grænna grasi. Ég segji sjálfur að þeir byrji að sjást á æfingum ekki seinna en 3. júní.


Hvað segið þið? Það er spurnig um að setja upp pott og sá sem að giskar næst réttri dagsetningu hirðir allan fjandann


Sjálfur segi ég 26. maí



__________________
Bjöss-man


Riddari

Status: Offline
Posts: 89
Date:
Permalink   

Fyrr.....Held að það verði þarna á bilinu 6-9 maí.....líklega þann áttunda 

__________________
Rafn


Veterian

Status: Offline
Posts: 300
Date:
Permalink   

Ef þessir miklu herrar sem héldu á vit ævintýrana ákveða að koma heim, þá verður það ekki með skottið á milli lappanna. Heldur verða þeir fegnir að komast heim í Hveró (því þar er jú langbest að vera), búnir að hlaupa af sér hornin og tilbúnir til að öðlast þá andlegu fullnægingu sem fylgir því að spila í góðra vina hópi með merki Hamars á brjóstinu


P.S.


Held að þeir drulli á sig annað hvort milli 22. og 28. maí, eða milli 28.maí og 6.júní.



__________________
...skjótari en skugginn


Veterian

Status: Offline
Posts: 300
Date:
Permalink   

Ég veðja á mánudaginn 30.maí kl:18:30.


 



__________________
...skjótari en skugginn


Veterian

Status: Offline
Posts: 241
Date:
Permalink   

Bíddu bíddu Hjörtur minn ætlarðu að ákveða þig það þýðir ekkert að giska bara á alla dagana á milli 22 maí til 8.apríl


 



__________________
Bjöss-man


Veterian

Status: Offline
Posts: 300
Date:
Permalink   

Sko, milli 22/5 og 28/5 er tíminn frá 2. umferð til 3. umferðar í 2. deild og milli 28/5 og 6/6 er tíminn milli 3. og 4. umferð. Þá ættu þeir að vera búnir að sjá að það er betra að spila heilan leik með félögum sínum í Hveragerði heldur en að spila í 5 mínútur með einhverjum vitleysingum frá Hnakkafossi.


Ég var líka búinn að spá dagsetningu (30.maí kl:18:30)



__________________
...skjótari en skugginn
Anonymous

Date:
Permalink   

Þetta eru nú skemmtilegar getgátur og vonandi rætist eitthvað af þessu hjá ykkur! Ég get nú ekki svarað fyrir alla hina en ég er alveg fullviss á því að ég mun ekki spila með Hamri næstu árin
Þannig að ef við áttum allir að koma heim á þessum tilsettu tímum þá fær enginn verðlaunin!


En gangi ykkur vel í sumar og vonandi náið þið að einbeita ykkur að boltanum og þeim sem eru að spila með ykkur í staðinn fyrir að vera að velta fyrir ykkur hvernær einhverjir leikmenn sem eru farnir komi aftur!


kv. Gaui B.H



__________________


Gildur Limur

Status: Offline
Posts: 48
Date:
Permalink   

Þetta eru nú skemmtilegar getgátur og vonandi rætist eitthvað af þessu hjá ykkur! Ég get nú ekki svarað fyrir alla hina en ég er alveg fullviss á því að ég mun ekki spila með Hamri næstu árin
Þannig að ef við áttum allir að koma heim á þessum tilsettu tímum þá fær enginn verðlaunin!



En gangi ykkur vel í sumar og vonandi náið þið að einbeita ykkur að boltanum og þeim sem eru að spila með ykkur í staðinn fyrir að vera að velta fyrir ykkur hvernær einhverjir leikmenn sem eru farnir komi aftur!



kv. Gaui B.H


p.s. þetta er það sama og að ofan... gleymdi bara að logga mig inn!



__________________
...er ekki í þessu til að tapa...


Veterian

Status: Offline
Posts: 300
Date:
Permalink   


P.S.


Nú er ég búinn að taka forystuna í keppninni...



__________________
...skjótari en skugginn


Veterian

Status: Offline
Posts: 241
Date:
Permalink   

í ljósi þess að sem að Gaui skrifaði hér að ofan þá spái ég því að hann gangi til lið við Hamar 6.júni.. ekki mikið seinna


Ja ég vona það alla veganna. einnig geri ég fastlega ráð fyrir að súkkulaði strákurinn fari að láta sjá sig í takkaskónnum upp í dal



__________________
Bjöss-man


Prins Póló

Status: Offline
Posts: 131
Date:
Permalink   

Ég er ekki viss, við þurfum örugglega að vinna í Lottó til að geta greitt þeim aur fyrir að spila með okkur. Ég giska á 17.júní þá verð ég búin að vinna í víkingalottói (ég heiti hér með á mfl. hamars 10% af vinningsupphæð ef ég vinn fyrir 17.júní).


kossar og knús



__________________
Wonderboy


Veterian

Status: Offline
Posts: 300
Date:
Permalink   

Og ég lofa því að allir vinningarnir sem ég fæ af þeim 500 ferðaþrist miðum sem ég var að kaupa á e-bay,fari í launagreiðslur til leikmanna. Síðan var ég líka að gera samning við ónefnt fiskvinnslufyrirtæki sem lofar okkur styrk í formi frosinna ýsuflaka og léttsaltaðri lúðu sem við getum notað uppí launagreiðslur (frétti að það væri vinsæll greiðslumáti núna).

__________________
...skjótari en skugginn


Fimmtíu kvikindi

Status: Offline
Posts: 55
Date:
Permalink   

... ég hef heyrt að á Selfossi sé mest greitt með geltúpum en sagan segir að uppnám hafi orðið í Selfossbæ þegar allt slíkt varð uppselt á dögunum

__________________
spila að gulu spjaldi ...


Prins Póló

Status: Offline
Posts: 131
Date:
Permalink   

Hvernig væri að ég fengi samning um gamla kleinuhringi og snúða úr bakaríinu


það er óþolandi að einhverjar bikkjur skuli fá alla bestu bitana.


Bjössi getur þú reddað þessu fyrir mig?


 



__________________
Wonderboy


Veterian

Status: Offline
Posts: 241
Date:
Permalink   

Getur verið að Sigurður Gísli hafi verið að fá útborgað frá Selfossi???  mér sýndist ég nefnilega sjá hann með kríuskít í hárinu....


 



__________________
Bjöss-man
Anonymous

Date:
Permalink   

Þetta eru ágætis umræður strákar og gaman að sjá að loksins sé eitthvað að gerast á síðunni.


Bjössi. Nei ég fékk ekki útborgað hjá Selfoss!!!


Heyrðu annað mín spá er sú....    Ég er það þrjóskur að eftir þessar umræður þá verður Hamar ekki málið fyrr en eftir 6.júni... ´


En án djóks. Ég verð ekki með Hamri í sumar!


Kveðja.


Sigurður Gísli


áfram Hamar



__________________


Gildur Limur

Status: Offline
Posts: 33
Date:
Permalink   

Ég segi að í mesta lagi einn þeirra komi aftur fyrir fyrsta leik í móti. Hinir ekki fyrr en eftir ár í fyrsta lagi!

__________________
Hálofta-Hannes


Veterian

Status: Offline
Posts: 241
Date:
Permalink   

Nú nú Hannes ertu með einhvern ákveðinn í huga??? ertu kannski með eitthvað inside information???´


Annars væri gott að fara að fá Bakarann á æfingar og hann gæti komið með gamla snúða og vínarbrauð fyrir jónas



__________________
Bjöss-man


Veterian

Status: Offline
Posts: 379
Date:
Permalink   

Ég verð nú bara að segja eins og er að ég býst ekki við neinum þeirra aftur. Ef að þeir ákveða að fara eitthvað hljóta þeir að fara í Ægi, það er víst í tísku... svo segja allavega Hlynur og Stebbi. En annars get ég ekki sagt að það hafi komið mér á óvart að þeir hafi skipt yfir. Í raun vissi ég það að þeir myndu fara eitthvað. (þó bjóst ég aldrei við Ægi) Því þegar Gaui tilkynnti að hann ætlaði eitthvað annað... þá vissi ég að hinir tveir finndu líka þörf til að söðla um... það hefur verið þannig í gegnum tíðina og ég bjóst ekki við því að það myndi breytast nú. Hins vegar finnst mér eðlilegt að menn vilji reyna fyrir sér á æðra stigi knattspyrnunnar, og ekkert nema gott um það að segja, en í mínum augum er það að fara í Ægir skref aftur á bak...


Annars eru menn að sjálfsögðu ávallt velkomnir aftur og ég ætla rétt að vona að þetta spjall hér verði ekki til þess að menn verði súrir í garð Hammer city, því þetta er auðvitað bara létt spjall og vangaveltur...   



__________________
Krullur rokka!


Veterian

Status: Offline
Posts: 241
Date:
Permalink   

Í tísku að fara yfir í Ægi??? Svo segja Stebbi og Hlynur??? jahá það er ekkert annað. Ef að þetta þykkir hipp og kúl þá er ég eitthvað aðeins að missa af lestinni.


Annars hafa Stebbi og Hlynur ekki verið þekktir sem miklir tískufrömuðir, eins hallærislegair og þeir eru nei nei nú er ég að gera létt grín. Það að þeir séu komnir yfir í Þorkslákshöfn gerir það bara ennþá skemmtilegr að spila á móti Ægi í sumar og um að gera að prófa að spila með öðrum liðum líka..enda er þessi 3. deild til þess gera að hafa gaman að þessu. ég vona bara að fá smá einvígi við Stebba og Hlyn (kannski á punktinum, hann ætti ekki break ). En Vonandi gengur þeim bara vel þarna og vonandi hagar Stebbi sér vel fyrir utan völlinn



__________________
Bjöss-man
Page 1 of 1  sorted by
 
Quick Reply

Please log in to post quick replies.

Tweet this page Post to Digg Post to Del.icio.us


Create your own FREE Forum
Report Abuse
Powered by ActiveBoard