Jæja jæja, "draumaúrslitaleikurinn" Arsenal - Man.Utd. Hvað segja menn um það? Ég persónulega held að það verði barist um hvern einasta bolta og 2-3 rauð spjöld muni verða staðreynd í leiknum. Blóð? Já mjög líklega. Brotin bein? Held ekki, en einhver meiðsl eftir subbu tæklingar. Ég vill meina að þetta verði móðir allra leikja á tímabilinu og vonandi munu mínir menn þ.e.a.s. Skytturnar frá London, muni jarða helv.... rauðu kjúklingana og síðan og þá verður fallegur dagur í Wales. Eru menn ekki sammála?