Jæja hérna er mín spá og ég trúi ekki öðr en að þetta fari svona, það getur eiginlega ekki annað verið.
Liverpool - Juventus 2-0 Biscan er ekki búinn að afreima skotskóna og skorar aftur með skalla(eftir að hafa hoppað höfðinu hærra en Zebina), Carragher setur hann svo með þrumufleyg stöngin inn uppi í nærhornið....svo verður pakkað á Delle Alphi
Lyon - Psv 1-1 Það búast allir við að Lyon rústi þessu vegna þess að þeir eru búnir að skora mest í meistaradeildinni og spila góðan fótbolta, en einmitt þess vegna koma Psv eins og skælandi ljón og setja fyrsta markið, og það verður engin annar en Jan Vennegoor of Hesselink sem skorar með frákasti. Viltord jafnar á 80 eftir snarpa sókn.
Þetta var nú snilldar leikur og þá sérstaklega fyrri hálfleikur hjá okkar mönnum í Liverpool og var markið hans Garcia næstum eins flott og hæstvirtst Matarmálaráðherra á laugardaginn. Nú er bara að bíða og vona að þessi úrslit dugi til þess að koma liverpool áfram í undanúrslit. Leiðinlegt með þessi mistök hjá Carson sem að var annars að spila vel í markinu.