Ég er að velta því fyrir mér hvort að grundvöllur sé fyrir tipp-keppni eins og við vorum með fyrir áramót. Ætlun mín var að byrja á nýrri keppni strax eftir áramót en eins og áður hefur komið fram hefur staðið illa á hjá mér. Ég vil fá svör hér frá alla vega sex strákum, ef menn hafa áhuga. Ef nóg af svörum hefur borist fyrir miðnætti á miðvikudag þá kílum við á það og byrjum um helgina. Fyrirkomulagið yrði eins, kosnaður einn bjór að taka þátt í hverri umferð, og því kippa í vinning ef að við erum allavega sex. Gjörið svo vel að skrifa athugasemdir um keppnina og þeir sem hafa áhuga annars verður þetta ekki gert.
Geiri... ég held að strákarnir séu bara hræddir við að þurfa að borga okkur! Einhver hefur lekið til þeirra upplýsingum um að við töpuðum VILJANDI fyrir áramóti til að fá sem flesta inn... en núna ætlum við að taka þessu að alvöru og þá þora hinir ekki Við verðum þá bara að tippa við einhverja aðra... ekki svona LÚSERA sem hlaupast á brott þegar alvöru keppni er komin í þetta.
Leikurinn fyrir áramót var bara prófraun, nú er það alvaran! Nei ég veit ekki hvort að það sé grunvöllur fyrir því að halda uppgjör fyrir keppnina fyrir áramót. Ég held að við ættum bara að kalla það æfingu og byrja um helgina í álvöru leik.