Members Login
Username 
 
Password 
    Remember Me  
Post Info TOPIC: Æfingar að hefjast, á fullu....


Veterian

Status: Offline
Posts: 300
Date:
Æfingar að hefjast, á fullu....
Permalink   


Jæja piltar, eða bræður. Nú hefjast æfingar á fullu undir stjórn nýráðins þjálfara, Kristins Guðmundssonar.


Æfingatímar verða sem hér segir:


Mánudagar; Laugasport í Hveragerði, kl:18:45. Byrjað á útihlaupi og síðan styrkjandi æfingar í tækjasal. Slökun í heita pottinum á eftir.


Þriðjudagar; Gerfigrasið í Laugardal, kl:20:30. Hitað upp og síðan æfing á grasinu til kl:22:00.


Fimmtudagar; Laugasport í Hveragerði, kl:18:45. Byrjað á útihlaupi og síðan styrkjandi æfingar í tækjasal. Slökun í heita pottinum á eftir.


Laugardagur/sunnudagur; Þegar ekki eru leikir í gangi, þá eru menn skyldaðir til að hlaupa úti og taka vel á því í tækjasal Laugasports. Þessi æfing er skylda, en menn hafa frjálst val hvenær um helgina þeir gera hana.


Rétt er að minna leikmenn á að tekið verður upp örlítið "æfingagjald" sem er einungis til að standa straum af kostnaði við tímana í Laugasporti. Upphæðin er ekki nema 5000 íslenzkar krónur, og hafa menn þá rétt á afnotum allra tækja í Laugasporti út febrúar mánuð.


Dæmi: Fjöldi æfinga í Laugasporti út febrúar eru 19, deilt í 5000 = 263 kr. pr.tíma.


Eins og menn sjá, þá er þetta glæsilegt tilboð og ég er viss um að litlir aurar sem þessir ættu ekki að hafa mikil áhrif á pingju manna.


Suma daga, þegar veður er hagstætt, fara mánudags og fimmtudags æfingar fram á sparkvellinum í Hveragerði. En Kiddi þjálfari mun láta menn vita af því í tíma.


Vill að lokum hvetja menn til að mæta á ALLAR æfingar, og þá sérstaklega ALLAR. Það á einnig og sérstaklega við um útihlaupin. Því að með góðri ástundun á "ekki eins skemmtilegu" æfingarnar, verður sumarið MIKLU skemmtilegra og auðveldara. 


P.S. Hef heimildir fyrir því að verið sé að vinna að fjölgun á leikmannahópi Hamars, nánari fréttir þegar meiri upplýsingar lyggja fyrir.


 


....skjótari en skugginn.



-- Edited by Hjortur at 11:00, 2005-01-16

__________________
...skjótari en skugginn


Veterian

Status: Offline
Posts: 241
Date:
Permalink   

Sæll


Frekar gott mál að setja upp svona tímatöflu.. en ég er alltaf að reyna að draga Jónas Michellinmann með á æfingar í hveró en hann er bara ekkert að nenna því og þurfum við því að beita mann þrýstingi... jafnvel að leggja slóð af kleinuhringjum frá Rvk til hveragerðis


Rvk Hveragerði



__________________
Bjöss-man


Prins Póló

Status: Offline
Posts: 131
Date:
Permalink   

Bjössi þú verður að muna að setja kleinuhringi  líka frá hveragerði í reykjavík svo ég rati heim...


Er fyrsta gerfigrasæfing vetrarins næsta þriðjudag þá??????


ég var aldrei góður að halda á lofti en núna er ég verri vegna þess að ég sé aldrei boltann fyrir vömbinni....... En ég er þó ekki rauðhærður....



__________________
Wonderboy
Page 1 of 1  sorted by
 
Quick Reply

Please log in to post quick replies.

Tweet this page Post to Digg Post to Del.icio.us


Create your own FREE Forum
Report Abuse
Powered by ActiveBoard