það er æfing í kvöld (mánudaginn 26. nóv) kl:19:00 á vellinum við íþróttahúsið í Hveragerði. Svo er æfing á morgun (þá væntanlega þriðjudaginn 27. nóv) í Mosfellsbænum kl:19:30, lagt verður af stað frá Hveró kl:18:45.
Þið verðið ALLIR að mæta á þessar æfingar því næsta föstudag (30. nóv) er leikur í Egilshöllinni. Mótherjar okkar þar er 2. flokkur ÍR og hefst leikurinn kl:21:30, mæting í höllina kl:20:45. Við spilum í okkar fallegu bláu búningum og er upplagt að nota þennan fyrsta leik okkar á undirbúningstímabilinu til að stilla saman strengi fyrir það sem koma skal.
Þriðjudaga í Hveragerði kl:18:45 Fimmtudaga í Hveragerði kl:18:45
Leikurinn á föstudaginn stendur og eru allir sem hafa mætt eða vilja mæta boðaðir í hann.
Eftir jólafríið verða æfingarnar teknar fastari tökum og þær skipulagðar í samræmi við búsetu þeirra sem æfa, þ.e.a.s. ef það eru margir sem mæta af höfuðborgarsvæðinu verða að sjálfsögðu æfingar þar líka.