blessaður guðjón..hhvernig er í danaveldi??? hvernig er það ertu ekki að spila fótbolta alla daga?? og ertu þá ekki orðinn djöfulli góður. það væri nú ekki verra að vera með einn snilling á næsta sumri
en varðandi þjálfarann þá verður nú eitthvað að fara að gerast sem fyrst...en ég veit ekki um neinn sem mann sem að gæti hentað í starfið.
Það er nú þannig hérna úti að maður er að æfa á fullu alla daga og er að æfa u.m.þ.b. 6-7 sinnum á viku! En það er samt bara fótboltaæfingar 3-4 í viku og svo eru lyftingaræfingar/sprettæfingar eða snerpuæfingar 3 í viku Þannig að þetta er ekkert grín! En það er allavega eitt sem ég er búinn að bæta það er fyrsta snerting og svo sendingar... farinn að spila varnaleikinn mun betur og er að bæta mig sem leikmaður En ég er ekki orðinn neitt tæknitröll, enda hef ég aldrei verið það því miður !!! Það sem ég er að æfa hvað mest núna það er að skjóta á markið, vegna þess að ég á mjög erfitt með að skora og hefur það alltaf verið mikið vandamál! um daginn þá vorum við að spila og ég klúðraði dauðafæri og þá sagði einn strákur í skólanum... nú skil ég afhverju þú ert VARNARMAÐUR (p.s. hef samt skorað 1 mark í 3 leikjum) En þetta er alveg ógeðslega gaman, og er ég búinn að vera að æfa með 2 liðium, var að æfa með varaliði AGF en meiddist frekar skítt... og svo fór ég að æfa með liði sem heitir VORUP en tímabilið hjá þeim er búið þannig að ég er bara að æfa í skólanum núna !!! Það er eitt sem ég hef bætt meira en allt... og það er hraðinn ... vegna þess að ég er búinn að tapa þessum 10 aukakílóum sem ég var með í sumar Snillingur og ekki snillingur... að mínu mati hef ég alltaf verið það... en ég hef bara verið að berjast við meiðsli þannig að ég hef ekki getað sýnt það en núna er maður kominn í gang og meiðslin hætt að gera vart við sig... þannig að maður getur farið að sýna sitt rétt andlit Þannig að það er bara ykkar að dæma þegar ég kem á æfingu!!!
Eins og þú veist BJÖSSI.... þá er ég ALLTAF STJARNA (allavega í mínum augum)
Kv. the Captain!!!
p.s. endilega farið að koma með fréttir af þessum GRÍMUKLÆDDA ÞJÁLFARA?
jæja guðjón bara búin að missa þessi aukakíló. ég get þó glatt þig með því að þessi auka kíló eru ekki tínd, ég fann þau fyrir þig og er að geyma þau, þú getur fengið þau aftur þegar að þú kemur leeds upp í úrvaldsdeildina (í manager)......
kveðja frá 101 núna ætla ég að fara að éta eins og elding!!!!!
Bjössi getur þú þetta
eða þetta
kanski ættir þú bara að gera þetta þegar þú hittir mig næst!!!!!
Skemmtilegir þessi broskallar. Varðandi þjálfaramálin er það þannig að hann er ennþá inní myndinni en hann gat ekki gefið lokasvar að svo stöddu. Hann er sem sagt fræðilega ennþá möguleiki en við erum samt farnir að leita annað á meðan ekki er hægt að treysta á það að hann skrifi undir. Við viljum nefnilega fá mann sem fyrst þannig að þetta verði komið þokkalega af stað fyrir jól. Menn verða að sýna þolinmæði og ekki skrifa undir neinstaðar annarsstaðar á meðan. Ég hef nefninlega heyrt að Selfyssingarnir séu að ganga all ískyggilega á eftir nokkrum mönnum hjá okkur og bið ég menn um að halda tryggð sinni. Þetta er ábyrgð sem tveir menn bera og reyna eftir fremsta megni að standa undir þeirri ábyrgð og vonum að þetta leysist sem fyrst. Við erum byrjaðir að æfa einu sinni í viku í bænum á gervigrasi Fylkismanna og munum gera það ásamt Æfingunum í Hvg þangað til að við fáum einhvern til starfsins.
Leikmanna skúbb er eftir minni bestu vitund svona:
Kapteinninn er kominn í fantaform og það er nóvember, engu að kvíða þar á bænum
Rauða eldingin ætlar að vera með okkur og engum öðrum.
Held að Björn Aron verði með ægi.
Hannes verður með eftir því sem ég best veit og bar hann liðið uppi á Hsk mótinu í markaskorunn
Guðni og Gummi Jónssynir sögðu við mig í síðustu viku að þeir ætluðu báðir að vera með og Guðni ætlar sér byrjunarliðssæti í vörninni og Gummi í framlínunni
Hef ekkert heyrt af Eimari, Hreim, Garðari, Magga Halldórs, Steina né Benna símeidda
Hákon heitir strákur sem er búin að vera sprikkla með okkur undanfarið og verður byrjunarliðsmaður hjá okkur í sumar ef hann verður áfram
Ég ætla að taka Óla Gísla í gegn og láta hann fara að æfa
Siggi Gústafs kemur til með að bjarga þessum tímabili eins og því síðasta
Selfyssingar eru að reyna að stela Sigga Gísla og Heimi en þeir eru báðir BARA að æfa körfu eins og stendur
Hjörtur stefnir á að vera með en það gæti þó breyst vegna hundgamals brots sem hann þarf jafnvel að fara í aðgerð útaf
Þráinn Ómar er lítill
Davíð Heims er hestakall
Kalli Valli verður með án efa(Karl Valur)
Haffi Björns verður mest með og á eftir að taka frekari framförum eftir því
Hlynur Kárason er að æfa með Í.R. og þykist ætla að hreppa byrjunarliðssæti þar. Ég er þó með loforð í vasanum frá honum sem segir að hann komi til okkar ef það tekst ekki hjá honum. Það er ágætt hann verður þá allavega í formi
Sverrir Ingibjarts er að æfa og stefnir á að vera lukkudýrið okkar í sumar
Þórir er stór
Árni Svavars er hættur
Bjössi Öldu líka
Kannski að Valdimar Hafsteins geti núna loksins verið með þar sem að hann er hættur formennsku Hamars
Heyrði að Sigurður Einar kæmi um miðjan maí og yrði með Hamri að sjálfsögðu, heyrði líka að Árborgarar vildu fá hann aftur, sel það ekki dýrara en ég keypti það
Hef heyrt að Stebbi-reður sé að æfa með Fjarðarbyggð og sér í fantaformi og ætli sér stóra hluti í sumar, hef líka heyrt að hann sé á leið til byggða
Haukur Sigurjóns er ungur og efnilegur og á möguleika á að vera byrjunarliðsmaður hjá okkur í sumar
Við eigum mikið af ungum og efnilegur strákum sem spila með bönd í hárinu og bleyta hárið á sér fyrir leiki og í hálfleik
Helgi Guðna, Tryggvi, Sindri, Jón steinar og fleiri, nefni þá bara af því að þeir voru með á HSK mótinu innanhúss Rabbi er búinn að finna sér lið á Ítalíu og kemur um jólin og svo aftur í apríl maí í hörku formi
Haffi Stefáns er að æfa með Val
Elías Óskars er týndur
Frank sá þýski var keyptur til Werden Bremen fyrir met upphæð
Jónas Guðna er búin að skrifa undir lífstíðarsamning hjá Hamri og hefur heitið að spila ekki með öðru liði í þessu lífi nema tilboð komi frá þeim rauðu eins og elding Svona er þetta eftir minni bestu vitund, veit líka að Hlynur er að plögga Hamar hjá Í.R. og ætlar að segja öllum sem eru ekki að ná sæti í því liði að koma í Hamar.
Ef að við höldum þeim mannskap sem var í sumar og bætum við tvem til þrem byrjunarliðsmönnum verðum við með gott lið. En þetta eru bara pælingar og ef einhver veit eitthvað betur en ég for god sake express ðæ self
Sorry Bjössi minn ég heyrði það eihversstaðar af einhverjum að líklega yrðir þú með Ægi en eins og allt sem ég skrifaði þarna voru þetta fyrst og fremst getgátur. En nú vitum við betur og vonum þá bara núna að þú komir til okkar þegar þar að kemur
En hvenær ætlar þú að læra að signa þig inn Björn minn? Ef þú gerir það ekki næst dæmi ég þig ógildan í tippleiknum og bjórnum verður skipt niður á okkur hina og þá eigum við allir gleðileg jól í plús