Leikurinn er á föstudag kl 19:30 í Árnesi. Umfg vildu ekki flýta eða seinka leiknum vegna þess að þeir verða með sitt sterkasta lið. Þá er ekkert annað að gera en að láta þessa skítbuxa og aftanírollurassahossara finna fyrir því í leiknum á föstudag. Með sigri getum við fagnað titlinum en ef við gerum jafntefli erum við ekki formlega búnir að vinna og getum því ekki fagnað titlinum. Legg ég til og mæli með að menn safnist í bíla kl 18:00 á föstudag.
Þið verðið að klára þetta strákar! Við erum langbesta liðið og eigum að fara taplausir í gegnum deildina. Ég fylgist spenntur með frá Danmörkinni og sendi ykkur baráttustrauma! Óli þú mátt endilega senda mér úrslitin eftir leikinn.. Síminn hjá mér er 004523398897
Og með þeim úrslitum átti Drangur möguleika á að vinna deildina líka með hagstæðum úrslitum úr sýnum leik gegn Ástrík. En allt kom fyrir ekkert og þeir gerðu 0-0 jafntefli við þá á eigin heimavelli.