Blessadir.... Ég var nú bara svona ad velta tví fyrir hvort ad tid hefdud nokkud svert tad reputation sem vid erum med í veisluhöldum med ad klúdra tessu villirbrádarkvöldi ? Var fólk almennt ánægt med tetta og hvad haldid ad margir hafi mætt á tad ? Skiladi tad einhverju fyrir okkur... kannski nógu miklu til tess ad geta æft einu sinni í viku í gervigrashöll?
Það skilaði því miður ekki miklu, en við fengum líka svo seint vitneskju um hvenær þetta var. Við erum núna komnir með miða á jólahlaðborð og erum búinir að senda mail á öll stórfyrirtæki Hveragerðisbæjar og meira að segja velyrði frá sumum. Nú reynir á menn að láta sín fyrirtæki kaupa miða á jólahlaðborð í gegnum okkur, það vinna jú allir einhversstaðar allavega á sumrin, og fáum við þá 25% af verði miðans. Við stefnum á að reyna komast einu sinni til tvisvar í mánuði á gervigras eftir áramót en það fer að sjálfsögðu eftir því hvernig gengur að selja. Ég set nánari uppýsingar um þetta í pistil innan skamms. Annars var mjög gaman í villibráðaveislu og fór hin síungi Ómar Ragnarson á kostum. Ég bjóst sjálfur ekki við því að hlægja svona mikið af honum en hann tók fullt fullorðið fólk uppá svið og gerði það að fíflum, það var mjög gaman