Hér inni verður æfingaplan bjórvambar en nú er óvíst með Stokkseyrarvöll vegna þess að þeir ætla að taka mörkin eftir helgi og laga þau eitthvað. En eins og staðan er núna er mæting á sparkvöllinn 19:30 á mánudag og þá verður komið í ljós hvort við getum farið niðreftir eða við þurfum að vera á sparkvellinum. Ég mun svo setja inn almennilegt prógram þegar þetta fer að skýrast með vellina.
Því miður verð ég að tilkynna að æfingin verður EKKI á grasinu við Ullarþvottarstöðina á sunnudaginn . Æfingin verður á sparkvellinum líkt og vanalega en grasæfingar hefjast í byrjun júní....
Æfing á morgun, fimmtudag á Stokkseyri kl.20 Þeir sem vilja geta hist við íþróttahúsið í Hveró og sameinast í bíla kl.19.19 Við verðum svo að reyna hafa eina létta æfingu fyrir leikinn á sunnudag. Búningarnir eiga að vera tilbúnir á föstudag. Partý, partý!