Sko ég hef alveg nóg að gera í vinnunni þó svo að HM sé að vera búið... það er nefnilega alveg full vinna að fylgjast með hvað er að gerast á leikmannamarkaðinum...
Annars læðist að mér sá grunur að Árni Geir sé hins vegar ekkert voðalega upptekinn
það er satt bjössi. Ég hef ekkert að gera og er meir og minna bara að chilla í vinnunni. Eftir þetta vantar mér eitthvað að gera, og er ég tilbúinn að sjá um næstu fjáröflun einn.
.... Yfir í annann sálm. Finnst að við ættum að velja lélegasta leikmann hverja æfingu. Dettur það í hug því að Ásgeir gat ekki blautann á síðustu æfingu. Mætti of seint, og var lélegur með lausar skóreimar í upphitun. Svo var hann helvíti auðveldur í leikjunum og liðið hans tapaði.
Sem refsingu fyrir að vera lélegasti leikmaður æfingarinnar finnst mér að finna eigi úldna sokka, og geyma í skúrnum eftir æfingar - þeir mega ekki vera þvegnir það sem eftir lifir sumars.
Óháð nefnd skal velja leikmannin, og skal hún samanstanda af ungum Hvergerðing, eldri Hvergerðin og Skagfirðing.
Þó svo að ég hafi ekki verið viðstaddur á þessari æfingu þar sem Ásgeir stóð sig svona líka þá var ég búinn að frétta af þessu og styð þar afleiðandi þessa hugmynd um stofnun nefndar til þess að sporna við því að þetta komi fyrir aftur.
Hins vega finnst mér leiðigjarnt mjög að ég skuli vera útilokaður frá setu í þessari nefnd jafnvel áður en í hana er skipað. Þetta þykir mér vera beinir fordómar í minn garð.
Ég er með tillögu að fjáröflun. Sendum Bjössa á Akranes um helgina og fáum verðlaun fyrir rauðhærðasta íslendinginn! Eru ekki einhverjar fjárhæðir í boði?
Annars líst mér vel á þennan nýja lið þar sem að ég er búinn með mína lélegu æfingu í sumar! En hvað á svo að gera við sokkana? Eiga þeir bara að vera í skúrnum?
Drengz..alveg óskylt þessu topici þá verður æfingin í dag, miðvikudag, kl 18:00 en ekki 19:00 þar sem FIFA neitaði að fresta leik portúgala og Fransaranna um svo sem eina klukkustund.
Árni Geir, nú sitjum við nokkrir Hamarsfélagar í ölæði saman og höfum ekki enn komist að niðurstöðu. Hvað á eiginlga að gera við þessa blessuðu sokka?? Það er ekkert fútt í því að vera með sokka og hafa þá inni í skúr sem aldrei er farið inn í?? Á að láta menn þefa af þeim?, snæða þá?, klæðast þeim? eða hvað? Útskýrðu mál þitt drengur svo Rabbi markaskorari viti hvaða skyldur hann hefur. Með von um skjót svör, kveðja nefndin.
Vill geta þess að það var Rabbi sem að skrifaði ofanverðan póst en ég er honum sammála að öllu leiti nema hvað ég hefði ekki skrifað "Rabbi markaskorari". Ekki nema það væri í einhverjum kaldhæðnis húmor, sem þetta hefði svosem getað verið...
hmmm...Hann thar ad sjalfsogu ad klaedst theim > hitt er svo valfrjalst hvort hann vill thefa f theim eda hengja uppa vegg hja ser: Get lofad ykkur thvi ad thad verdur ekki gedslegt ad vera i theim undir lok mots; var annars ekki drykjubann thessa helgi
hmmm... kannast ekki við þetta ölæði...hins vegar er því ekki að neita að það eru til ýmsar tegundir af öli s.s. malt, engiferöl og jólaöl. mér líst ágætlega á þessa sokkahugmynd og það er ekkert mál að skella þeim bara í skottið og deila þeim svo bara á milli ykkar félagana í Hamri af og til, skaðar mig ekkert