... maí prógrammið og tilkynningar hér á síðunni voru meiriháttar villandi í maí. Þannig ég er bara að tékka hvort það sé hægt að counta á þetta (með fyrirvara um óviðráðanlegar breytingar).
Það prógrmm var sett fram alveg hárrétt (á þeim tíma). Aftur á móti tilkynnti þjálfarinn alltaf breytingar á æfingum, þ.e.a.s. ef einhverjar voru í vændum.
Ég biðst hér formlega afsökunnar á ummælum mínum hér á síðunni, varðandi skipulaxmál Hjartar formanns og Kristmars þjálfara. Ég geri mér grein fyrir því að það kaós sem einkenndi maí er ekki þeim að kenna. Ég var full bráður þegar ég skrifaði kommentið, og sé mikið eftir því núna. Eins og Henry sagði, 'Grasið var heitt'.
Svo er annað mál með formann sektarkerfisis. Búinn að mæta á þrjár æfingar í sumar og er strax farinn að rífa kjaft -> þar sem hann mætti ekki á æfingu í maí þá finnst mér hann ekki hafa atkvæðarétt né vit til að beita sektum í þessu samhengi.
jæja hvað sem þessu sektarkerfi líður þá hefur verið ákveðið að fresta fjáröflunni um óákveðinn tíma, eða þar til dokarnir losna sjálfir með tímanum og fúa þannig að þeir hreinsa sig sjálfir.
Ég vil benda þér á að þú ert ekki nægjanlega hátt settur innan þessara samtaka til að ákveða einn hvort fjáraflanir og/eða önnur verkefni eru sett af eða á hjá okkur.
Þegar þú loksins nærð að koma þessu sektarkerfi í lag og dru**ast til að plögga veffanginu fyrir síðuna þá er hægt að skoða það hver þín áhrif og völd eru innan klúbbsins.
Þangað til skaltu bara grjót halda kj**ti.....
Já og btw, þú skuldar 10.000.- kall í sjóðinn vegna slælegrar æfingasóknar í maí og júní en sleppur á núllinu ef þú heldur næstu þjöppu heima hjá þér
það er skiljanlegt að menn verði dálítið áttavilltir þegar þeir eru uppaldir Sauðkrækingar, búandi í Reykjavík, spila fótbolta með Hveragerði, vinna í Kópavogi, æfa í Árbænum og keppa á Stokkseyri.
ef þú berð hag félaxins fyrir brjósti, þá sendirðu syngjandi Geir Ólafs með planið, súkkulaði og blóm - jafnvel einhverjar innréttingar í nýju íbúðina.