Ég get byrjað á því að gleðja ykkur (eða ég held það) með því að segja ykkur að ég er búinn að flýta heimför vegna óviðráðanlegra aðstæðna og kem heim 24.-25. maí. Ég næ þá alla vega að vera á hliðarlínunni í fyrsta heimaleik og kannski að spila nokkrar mínútur í ágúst þegar ég er kominn í form.
En allavega langaði mig að spyrja ykkur hvaða lén þið viljið fyrir Hamarssíðuna. Lén sem enda á .is eru ekki fýsilegur kostur þar sem að þau eru svo dýr þannig að það sem kemur til greina er .net - .com - .org - .biz - .tv og eitthvað annað.
En hvað vilja menn að lénið verði? Eigum við að hafa það hamarfc.net. Mér finnst persónulega íslenskara að hafa .net heldur en .com. Og ef við ætlum að hafa þetta íslenskt eigum við þá að fara í hamarkf.net (= hamar knattspyrnufélag) eða kfhamar.net? (kannski of líkt kamar.net) Hvað segiði, komið með tillögur og ég get athugað hvað er laust.
Ég veit ekkert um nýju síðuna en til að byrja með fær þessi síða bara nýtt heimilisfang. Ég er búinn að tala við Bjössa svona tíu sinnum um vefsíðumál en það er alltaf eins og ég sé að minnast á þetta í fyrsta skitpi. En ef við fáum host get ég jafnvel búið til nýja síðu með tíð og tíma, þ.e.a.s. ef það er ekki einhver annar að vinna í því.
Annars er þá staðan svona (ef að Siggi Gísli er í raun sá svali?)
Hamarfc.net = 3 (Ásgeir, Hjörtur, Siggi G.) Hamarfc.tv = 1 (Hannes með .com til vara)
Já ég vissi það náttúrulega alltaf Siggi minn. Siggi Gísli er alltaf að reyna að gera mikið úr sér með svona nöfnum en það á náttúrulega betur við þig En þá er staðan svona:
Hamarfc.net = 5 (Ásgeir, Hjörtur, Siggi G., Björn Aron og Siggi Svali) Hamarfc.tv = 1 (Hannes með .com til vara en sáttur við .net)
Eru engar aðrar tillögur? Það er til endalaust af þessu. Þið getið tjékkað á því hvað er til hérna
Hey djöfull. Af hverju kom þetta ekki inn sem póstur hjá mér hérna á undan. Ahh þar missti ég af einum póst, en eins og glöggir lesendur gátu kannski lesið út úr síðasta pósti þá var það í rauninni ég sem skrifaði hann en gleymdi bara að logga mig inn.
með kveragerðishveðju
rafn.blog.is
p.s
Bjössi hlýtur að hafa verið veikur í dag. Hann er ekkert búinn að commenta hér þannig að hann er greinilega ekki í vinnunni
Ég er að vinna í málunum með lénið og það er allt útlit fyrir að við verðum hamarfc.net þar sem að það er milku dýrara að vera með .is og svo er .com eitthvað svo útlenskt.
Ásgeir hættu þessu einelti ég er að vinna í málunum. Ég er bara mjög upptekinn maður.
Jahh, þetta er allavega í fyrsta skipti sem að þú talar um þetta af fyrra bragði þannig að það er allavega framför En ég hélt að við þyrftum að kaupa lénið annarsstaðar? En allavega skiptir ekki máli, bara hvað við erum að borga fyrir það? Stefnir samt allt í hamarfc.net ef engar frekari mótbárur koma
Af því að .is er svo dýrt og .com er svo útlenskt. Þá er það skoðun flestra að hamarfc.net sé íslenskast og best. En allir eru opnir fyrir frekari tillögum, hver sem þú ert