Ég get ekki annað en grátið þessa dagana vegna gengi minna manna í englandi. Djö eru þeir lélegir
Hér með er það tilkynnt að árið 2005 er ekki árið sem ég mun muna eftir sem fótboltaárið, annars er gaman að segja frá því að þessar hetjur mínar frá englandi sýna ekki ósvipaða takta og lið HAMARS sýndi síðast sumar, þrátt fyrir að við fáum aðeins minna borgað á viku. Nú er bara málið að bera menn í liðunum saman og sja´hvað við eigum sameiginlegt.
Rooney og Bjössi framherjar af guðs náð og eru einnig líkir í útliti og rosalega skotfastir, skemmtilega rauðhærðir
Scholes og Rafn líka rauðhærðir, þvílík og önnur eins yfirferð og báðir ákváðu þeir að fórna landsliðssætinu fyrir félagsliðið sitt.
Van der Saar og Ómar, svipaðir að hæð, ég er samt ekki frá því að Ómar sé aðeins fljótar en Saar sparkar lengra.
Hjörtur og Ferguson, Þar sem að Ferguson er skoskur tel ég að þeir séu álíka óskiljanlegir í focking hálfleiknum
Siggi gú og Ronaldo. Tækni tröllin í liðum sínum stundum þegar þeir eru með boltan finst mér eins og þeir viti ekkert hvað þeir eiga að gera við hann....... Svo komast kvennamál þeirra oft í blöðin
Jónas og Ferdinand ofdekraðir helvítis aumingjar sem ætti ekki að nota í vörn heldur frammi til að skora mörk. Þarf að segja meira.
Karl Valur og o´Shea Þegar þörf er á skyndisókn þá eru þetta mennirnir. báðir með rafmagnaðan vinstrifót
Fletcher og Hannes ég er viss um að Hannes kæmist í Skoska landsliðið ef hann væri ekki íslendingur. Svo er Fletcher víst ansi klár í stærðfræði
Keane og Einsi rífa kjaft á milli þess sem þeir eru að ná andanum og eru frá vegna aldurs
Björn Ásgeir og Wes Brown Krullur og með furðulegt hár, þegar þeir ætla að sparka í boltan veit maður aldrei hvað getur gerst. Þekkt kvennagull
Þessi orð þurfa ekki að endurspegla skoðun fjölskyldu minnar eða annara íslendinga, þau voru skrifuð í óðagoti og í sæluvímu rétt eftir matinn.
Þessi umræða kom nú bara upp þegar við, nokkrir félagar, horfðum á United vinna Rússnesku þvottavélina. Haft var á orði að það væri örugglega fínt að slá golfbolta af hausnum á Brown. Þá sagði ég ,,jáh hann er flottur" og rendi getnaðarlegum fingrum mínum gegnum röffið á hausnum á mér. Þá sagði sá sami að það væri örugglega fínt á mér líka, en niðurstaðan varð sú ég væri heldur meira svona útí heavy röff, ekki eins og Brown sem klárlega flokkast undir fairway.
Helv hvað afhverju þarf ég að vera Rooney? Ég þoli ekki Rooney. Enda gallharður Poolari.
Hins vegar þá skil ég samlíkinguna á Sigga Gú og Ronaldo. enda flækja þeir boltanum milli fótanna á sér og skilja þeir varnamennina ringlað...verst er samt að oftast þá setndur Siggi líka eftir kolringlaður og hefur ekki hugmynd um það hvar boltinn er.
Svo gleymdist að bera saman Helga Guðna og Alan Smith. Báðir verða þeir alveg kolruglaðir þegar þeir fara inn á völlinn og hafa fengið spjöld fyrir að láta skapip fara með sig. Svo eru þeir líka þekktir fyrir að vera með fáránlegar hárgreiðslur. Þó svo að Alan Smith hafi nú séð að sér og klippt af sér þetta fáránlega aflitaða hár sem hann hefur verið með síðustu 17 ár.
p.s. Hann Jónas er nú líkari Glazer feðgunum í vaxratlagi en nokkurn tímann honum Rio