Þá er komið að því piltar, við erum eina liðið á Suðurlandi sem enn er inni í bikarnum og er það okkar að verja heiður Sunnlendinga í keppninni. Núna vinnum við Hvíta Riddarann með heimaskítsmáti og neglum okkur í næstu umferð.
Mín spá:
Hamar-Hvíti Riddarinn 1-0
32 liða úrslit
Hamar-ÍBV 4-1
16 liða úrslit
Hamar-Keflavík 3-0 (Hamri dæmdur sigur eftir að allt Keflavíkurliðið greindist með stera í lyfjaprófi)
8 liða úrslit
Hamar-ÍA 2-1 Hannes skorar 2 úr víti
Undanúrslit
Hamar-FH 5-3 (Hamar skorar 2 mörk á síðustu mínútu framlengingar)
Úrslitaleikurinn
Hamar-KR 3-3 (Hamar vinnur í vítaspyrnukeppni eftir að hafa veri 3-0 undir í hálfleik og sannar þar með að lélegu liðin geta víst grísast í gegnum heila keppni og unnið hana ósanngjarnt)
Nú er að duga eða drepast í kvöld. Þið fáið ekki annað tækifæri en í kvöld. Allar aðstæður góðar, fínt veður, fyrsti heimaleikur og þar að auki bikarleikur þar sem barist verður til síðasta blóðdropa.
Hefur leikurinn ekkert verið auglýstur? Hvernig væri að setja inn alla leiki Hamars á viðburðardagatalið á www.hveragergdi.is?
Ekki glæsileg úrslit í bikarnum í þetta skipti. Kemur næst ...
Heyrði að Bjarni Fel var að tékka á stöðunni á Rás 1 og 2 á miðvikudaginn. Sagði víst að í Hveragerði yrði þetta leikur kattarins að músinni og átti þá við að Hamar myndi taka þetta. Svo fær hann fréttir úr Hveragerði: "Ha, tvö-núll fyrir Hvíta riddaranum!"
Svo í fréttum Sjónvarps í gærkvöld er viðtal við fyrirliða Hvíta riddarans og Gunnleif Gunnleifsson úr HK og Adolf Ingi Erlingsson spyr Gunnleif: "Eruð þið ekki skíthræddir, þeir burstuðu Hamar 7-0?"
Greinilega fínt orðspor sem Hamar hefur náð sér í ... alla vega hjá íþróttafréttamönnum RUV