Við höfum verið eitthvað að ræða um þjöppu einhverja helgina... hvað segiði um bústaðarferð einhvert út í rass??
Mér finnst þrátt fyrir ófarir okkar í síðustu leikjum að það sé fín stemning í hópnum og menn séu tilbúnir í að leggja sig fram fyrir sumarið og í sumar. Það væri gaman að byggja á því...
Hvaða helgi/kvöld hentar ykkur???
En þó svo að ég komi með þess hugmynd hér á spjallborðið... tek ég skýrt fram að ég ætla ekki að redda neinu nema sjálfum mér...
Svo er líka alltaf hægt að ræða það að halda partý hjá my old folkes í Verahvergi, fyrir ofan bæinn, pottur og hægt að hafa læti... enginn nálægt nema Pála frænka.
Það sem við vorum að hugsa var annað hvort að fara í bústað eða gera góðan deal í Hveragerði. Ég er með einn bústað í huga sem að hefur nóg svefnpláss fyrir heilt fótboltalið og konur jafnvel líka, þó svo að við myndum ekki leyfa þeim að koma með. Þar er pottur og fínerí. Mér datt í hug að við myndum keyra þangað á föstudegi eða laugardegi klukkan svona fimm, sex, sjö og grilla, leika okkur eitthvað, fara í pottinn og söngla eitthvað. Það myndi hins vegar kosta eitthvað og er meiri fyrirhöfn.
Það væri náttúrulega mjög gott að vera í Hveragerði ef að við getum notað þetta rausnalega boð Condolezu um heimboð á Varmá. Þá gætum við farið á Pizza fengið okkur að éta og öl, skeggrætt málin lagt fram tillögur að fjáröflunum, umgjörð sumarsins og svo framvegis og svo gætum við rölt saman heim til Grjóna. Drukkið þar meira, röflað um fótbolta, farið í pottinn og jafnvel samið Hamarslagið
Annars er þetta bara spurning um hvað mönnum finnst, mér persónulega er farið að lítast vel á seinni hugmyndina.
Baula here we come , ég er sko sannarlega til í að taka dýfingarkeppni.
Sammála Jónasi með að nú er kominn tími á að sýna gríslingunum hvað þeir eiga ekki að gera
En ég vil vita hvaða helgi hentar ykkur...
Semjum Hamarslagið... maður ætti kannski að fá tölvu og græjur lánaðar í partýið til að taka upp hópkórus rétt eftir að hann er saminn... Tökum bara upp Hamarsplötu, enda eru allar íslenskar poppplötur samdar á einhverjum bústaðarfylleríum...
Núna þarf maður bara að plögga gamla fólkið....,,Mamma má ég halda partý?"
Framkvæmdastjórinn/skemmtanastjórinn/vefsíðustjórinn græjar dagsetningu og hefur síðan samband við formanninn/gjaldkerann/fjáraflannastjórann sem reddar díl..
Einnig ánægður með spjallið hér, núna þegar þetta er skrifað eru þrír meðlimir og tveir gestir inná spjallinu þið getið séð það neðst á fremstu síðu spjallsins
Já góð mæting, þökk sé flensufaraldri??? sem lagst hefur á kennara, hefur maður tíma til að skrifa (og stefna á að verða "gildur limur", þ.e.a.s. líka í spjallinu)
Sælir já Bo sammála ánægjulegt að sjá svona marga skoða þetta.
En ég vil nefna það að það fattaði enginn brandarann minn... ég startaði á því að spyrja að því hvort menn væru ekki til í að koma í þjöppu... út í rass.
Kannski er þetta bara minn sjúki húmor sem enginn skilur hvort sem er...
Takk fyrir að banna mig Bó...hva á ég að hætta að vera fyndinn...
og Hjörtur, það er alltaf gaman að sjá að þú kannt brandaranna ennþá... þessi er gamall og klassískur...Hvar fannst grjónið fyrst... í Uncle Ben´s pakka... snilld. Var hann ekki svona annars??
Fyrst þið eruð að tala um keppni þá legg ég til að við förum í brandarakeppni... sé að ég og Hjörtur komum sterkir inn.... Keppnir án áfengis eru leiðinlegar...
og Njörður... auðvitað var ég ekki að grínast með þetta