Fyrstu æfingar undirbúningstímabilsins eru að byrja. Það verður byrjað svona í rólegri kantinum og svo þegar nær líður að nóvembermánuði förum við að ákveða fasta æfingatíma sem (vonandi) flestir geta sætt sig við og komist á.
Það er mæting á svæðið a.m.k. 15 mín. fyrir æfingu og við höfum búningsklefa til umráða fyrir og eftir æfinguna. Verið þið svo duglegir að láta vita af æfingunum og fjölmennum allir á þessar fyrstu æfingar Hamars sem 2. deildar lið
Ójú elsku kallinn minn. Formaðurinn ætlar að mæta á æfingu með áreimaða takkaskó og tilbúinn að kenna ykkur (sérstaklega þér Bjössi (og Sigga Gísla líka)) hvernig á að skora mörk!!!!
Ég er í dúndur formi (andlega) og hef alltaf sagt að ég nennti ekki að spila í 3. deildinni, það tímabil er löngu búið hjá mér. Því finnst mér rökrétt framhald á ferli mínum að taka eitt skref upp á við og negla 2. deildina næst....
Hlakka til að "take you to the bakery" á morgun....