Geiri, var að spá í þessu eftir síðustu umferð þar sem ég og Haffi Big voru efstir með 7 rétt :) Er það ekki þannig að við splittum gróðanum 50% - 50% og ef það er oddatala t.d. 7 sem taka þátt, fer það þá bara ekki eftir því hver er fyrir ofan með fjölda rétt í heildina (s.s. úr öllum umferðunum) sem er ÉG Eða virkar það bara þannig að maður fær ekki neitt... og potturinn fer bara yfir í næstu umferð ? Er ekki alveg að fatta þetta enda kannski ekki búinn að vera að reyna að fatta það þar sem ég ÆTLAÐI BARA ALLTAF AÐ VINNA En endilega útskýrðu nú rétt fyrir mér þegar þessi staða kemur upp !!!
Já við Haffi Big lentum í jafntefli strax í fyrstu umferð. Mér fannst þá hljóma best að við fengjum þá þátttökuna frítt en allir aðrir þyrftu að borga. Vinningurinn, í þessu tilfelli núna t.d. fimm stykki, færi þá á næstu umferð. Þetta fannst mér gera þetta spennandi og hækka það sem í veði er. En ég er alveg tilbúin að breyta því ef að það fær samþykki að hafa þetta þannig að vinningurinn skiptist niður á þá sem eru jafnir, en veit ekki með það að sá sem er efstur á stigalista fái odda stykkið. Kannski ætti þá, ef um oddatölu er að ræða, auka kvikindið að fara í næstu umferð, hvað finnst mönnum. Ég breyti þessu náttúrulega ekki nema menn tjái sig en ég er samt að mörgu leiti sammála. Hvað finnst hinum???