Jæja strákar. Stórleikur á morgun. Vildi bara benda á það að Kiddi Jakobs er að dæma. Ekki amalegt að spila undir handleiðslu milliríkjadómara ;) Ef þetta er sá
Þetta er sá hinn sami. Við vorum líka með Gylf Orra í fyrra, þvílíkur munur að spila með svona snillinga í dómgæslunni. Eitthvað annað en það sem við höfum þurft að sætta okkur við í þessari blessuðu 3. deild.
En svo er bara að taka af sér vetlingana og slátra þessu fiskfarsi á morgun....
Ég á ekki til orð sem lýsa ánægju minni með leik ykkar í gær, frábær sigur og 3 verskulduð stig. Við nálgumst okkar markmið með hverjum leiknum og því mikilvægt að halda dampi þar til þetta er orðið öruggt og sæti í úrslitakeppninni fellur okkur í skaut.
Enn og aftur; til hamingju með frábæran leik. Ef ég væri með hatt þá tæki ég hann ofan fyrir ykkur, Þið eruð hetjurnar mínar.