Þessi heimur sem við hrærumst í er magnaður, ég hélt að ég væri búin að sjá allt en viti menn dett ég ekki bara inn á svona litla og sæta spjallsíðu (ég vissi ekki af henni í alvörunni). Og vitiði hvað hérna eru viti bornir menn (og börn) að skiptast á skoðunum um öll heimsins vandamál og alllt hitt líka.
ég ætla bara að bjóða sjálfan mig velkominn hingað á þessa spjallsíðu og klóra mér aðeins í tippinu.
Ég vill svona í lokin deila svolitlu með ykkur en þið sem vitið það ekki er ég betri en þið allir í fótbolta. og hafiði það
Áfram manchester og reynið að drullast til að vinna þessa helv.... hálv.... í Ar..... um helgina kveðja í sveitina Jónas.
Já vitir menn nær og fær. Jónas er búinn að finna spjallið! Ég var virkilega farinn að halda að þú værir svona rosalega anti félagslegur en annað kom á daginn, þú ert bara blindur. Ég var meira að segja búin að prófa að skrifa slæma hluti um þig til að reyna að fá svörun en allt kom fyrir ekki. Það gleður mig mikið að þú ásamt fleirum séu að uppgötva mátt internetsins því að satt best að segja var lítið sem að ég og Gaui vorum EKKI búnir að ræða okkar á milli hér á spjallinu með því að reyna að virkja það.
Ég verð að segja þú komst mér skemmtilega á óvart Nasi Guðnason, búin að setja inn mynd og allt sjálfur, ég bara varla trúi þessu. Ég tók mér þó það bessaleyfi að skipta um mynd þar sem að ég átti svo góða mynd af þér að syngja fagrann söng í rútunni á árshátíðinni.
Annað mál, það er tippleikur í gangi sem ég hvet menn til að taka þátt í. En þið sem eruð í honum ég var að spá hvort að við ættum ekki að spila þennan leik fram að áramótum og gera þá upp vinningshafa og dreifa vinningum. Með því móti verða jólin mjög skemmtileg og spennandi. Svo byrja allir á núlli eftir áramót og fram á vor, eða kannski væri hægt að núlla um páska.
Segið ykkar skoðun á þessu svo að ég sé ekki að taka ákvarðanir útfrá því hvernig mér gengur Svo ég fari nú að hætta þessu blaðri , hæ hæ
Já kallinn minn, Administratorinn er það sem ég er kallaður hér og hef ótakmörkuð völd. Þú getur ímyndað þér að ég sé að sækja á þig með bolta á tánum, því í þeirri stöðu getur þú ekkert gert til að stoppa tæknitröllið, eins og kom svo oft í ljós í sumar, hér getur þú ekkert gert til að stöðva það sem ég geri, ég gæti látið þig koma útúr skápnum hérna
Ég og Odddsonin, þetta leadership-eðli fylgir krullunum.