Á sunnudag er hraðmótið og hefst það klukkan 16:00 á Stokkseyrarvelli. Það er mæting 15:30 niðreftir. Allir eru hvattir til að mæta en Bjóvömb verður tvö lið á þessu móti.
sambandi við það að skipta liðunum niður þá verðum við að sjá hverjir mæta og skipta niður í tvö jöfn lið. En búningar koma ekki fyrr en eftir tvær vikur þannig að í dag spilum við bara í vestum.
Jæja ekki fór þetta einsog við vildum, töpuðum úrslitaleiknum í vító eftir að yðar einlægur klúðraði víti en jæja góður árangur samt sem áður þar sem vömbarar voru með tvö jöfn lið í keppninni en ungir vömbarar voru hársbreidd frá því að komast uppúr riðlinum og voru bjórvambarmenn eina liðið sem sendi tvö lið á vígvöllinn. Í alla staði ágætis keppni þó veðrið hafi leikið okkur grátt. En semsagt þetta lofar góðu fyrir sumarið og er ég sannfærður um það að við verðum í bullandi baráttu um íslandsmeistara titilinn í sunnlensku deildinni.
Það þarf náttúrulega ekkert að taka það fram hverjir höfðu völdin í bjórvömb U - björvömb G .... En ég held að þessi úrslit segi okkur það að við eigum eftir að rúlla þessari deild upp......ef að Óli myndi æfa sig í vítum Er annars ekki æfing á morgunn?