Jæja nú þegar fyrsti dagur æfingarferðarinnar Hellu er að líða undir lok þá er um að gera að fara yfir daginn. Við mættum í Árhús um klukkan 19:30 ( menn voru að vísu að mæta mis stundvíslega). Við mætingu var mönnu úthlutaður æfingargalli og skipt niður í kofa. Það er óhætt að segja að menn hafi verið mis ánægðir með herbergisfélaga sína og reyndi Hlynur til að mynda að borga öðrum leikmönnum fyrir að hýsa litla bróðir sinn, en án árangurs. Fyrsta æfingin hófst lauslega uppúr kl 20:00 og þegar komið var á gras svæðið var hegðun leikmanna ekki ósvipuð því þegar beljum er hleypt út á vorin. Ekki var samt laust við að menn virkuðu þyngri á grasinu heldur en á gervigrasinu og var Siggi Gísli vinsamlegast beðinn um að taka bremsurnar af hjólastólnum sínum. Að æfingu lokinni var farið yfir dagskrá helgarinnar. Núna eru menn að dunda sér við hina ýmsa iðju eins og að spila, syngja og æfa golfsveifluna úti á túni. Einn hópurinn ákvað að bregða sér í sjoppuna en komust að því að þar var búið að loka. þá var brugðið á það ráð að bruna á Hvollsvöll...einungis til að koma að læstum dyrunum. Já þeir eru mis vitlausir greyin. En svona allt í allt þá er öll aðstaða til fyrirmyndar hér á Hellu og er þetta tilvalið til að peppa upp mannskapinn fyrir úrslitaleikinn á sunnudaginn gegn Hvöt. Bikarinn heim í hveragerði!!!!
Jæja þá er Æfingarferðin búin og náttúrulega drullaði upp á bak við að skrifa þessa blessuðu dagbók og biðst ég bara innilegrar afsökunar á því. Hafði bara nóg annað að gera. Ég ætla bara að ljúka þessari helgi á að segja að hún hafi verið snilld frá A til Ö. Verst að leikurinn gegn Hvöt skyldi ekki verða punkturinn yfir i-ið á frábæri helgi en so be it. fengum alla veganna medalíu sem á stóð að við værum sigurvegarar í c deild lengjubikarsins. Hvað ætli hafi staðið á gullinu sem Hvatarmenn fengu?