Þessi þráður er tileinkaður Bjórvömb í tilefni af endurvakningu klúbbsins. Hér geta menn rætt helstu mál félagsins og þjálfarar sett inn æfingar og leiki svo fátt eitt sé nefnt.
Úúú jee....Djöfull er gaman að sjá þetta. Til hamingju Bjórvambarar. Það liggur við að mann langi bara að vera með Bjórvömbinni í sumar og láta Hamar bíða aðeins Maður á eftir að mæta á völlinn sem stuðningsmaður nr 1 í sumar.
Heldur betur maður, þetta er snilld. Það voru víst um tíu á æfingu í gær, formið var ekki uppá marga fiska en taktarnir voru til staðar að sögn viðstaddra.
Næsta æfing er á sunnudag kl 19:00 á sparkvellinum við skólann. Við erum að vinna í að panta búninga og það á að panta þá í lok næstu viku ef þið komist ekki á æfingu núna sunnudag eða á miðvikudag en ætlið að vera með látið Þráinn vita í síma 8615080. búningar og æfinga-og búningagjald greiðist svo í næstu viku óli
Jæja önnur æfing hjá Bjórvömbunum að baki og mættu 15 belgir þar af nokkrir nýjir. Núna eru 22 búnir að skrá sig fyrir búning og þurfa þeir að greiðast fyrir næsta föstudag en aðeins greiddir búningar verða pantaðir. Hægt er að greiða Gumma Jóns gjaldkera beint eða leggja inn á hann en sími hjá honum er 6984726. Næsta æfing er miðvikudaginn kl 19:00 á sparkvellinum.
já já síðasta æfing vömbara var á stokkseyrarvelli á föstudaginn var og 13-14 strákar mættu. Grasið var gott og andarteppan kom aðeins seinna hjá mörgum en á æfingunni á undan. Á morgun mánudag, er æfing á stokkseyri kl 20:00 og er mæting niðrá sparkvelli 19:30 þar sem sameinað verður í bíla. Einnig er SÍÐASTI séns til þess að greiða fyrir búninga en þeir verða pantaðir á þriðjudag. Einungis greiddir búningar verða pantaðir. Hægt er að borga Gumma Jóns en sími hjá honum er 6984726.
Mér skilst að það sé alla vega verið að panta 40 búninga En það eru þó menn þar inn á milli sem eru bara að kaupa sér búning til þess að eiga treyju merkta þessu merka félagi