Fyrsta formlega æfing tímabilsins undir leiðsögn nýráðins þjáfara, Boban Ristic, verður mánudaginn 29. janúar á Fylkisvellinum kl:21:00.
Safnað verður í bíla og keyrt frá íþróttahúsinu í Hveragerði kl:20:00. Menn eiga að vera klárir og mættir á svæðið a.m.k. 10 mín fyrir æfinguna. Létt skokk og bolti verður megin þemað á þessari fyrstu æfingu okkar, þannig að menn eiga að taka með sér jogg skó líka.
Æfingaplaninu (þ.e.a.s. dagsetningar og leikir) fyrir undirbúningstímabilið verður dreift á æfingunni.
Nú sjáum við hverjir eru í þessu af alvöru og hverjir ætla bara að dúlla sér í playmo með hinum litlu strákunum....
Ef þú getur ekki mætt á æfinguna, en ætlar samt að ganga í félagi meðal hinna vösku knattspyrnumanna Hamars sem ætla sér upp úr 3. deildinni í sumar, og hefur löglega afsökun fyrir að mæta ekki, skráðu þig þá hér að neðan til að sýna hverra manna þú ert.
Ekki vera lúser..... spilaðu fyrir Hamar og upplifðu sannan liðsanda og sigurgleði í brjóst þínu, hamingju sem orð fá ekki lýst og virðingu alþjóða knattspynuheimsins.
Mér sýnist verða þrusu mæting... það er allavega enginn búinn að segja annað.
Ég verð því miður að fá frí þar sem að ég er að vinna þetta kvöld en að öllu jöfnu er ég þó ekki að vinna á mánudögum þannig að þetta verður líklega eina mánudagsæfingin sem ég sleppi á þessu tímabili